7.11.2011 | 14:16
Án leyfis??
Hvernig er þetta annars, má ég labba um landið án þess að eiga það á hættu að vera kærður fyrir? Skiptir máli hvaða farangur ég er með? Ef það er þannig að allt sem flýgur eða fýkur yfir eða á óræktuðu landi er það þá talið eign þess sem á landið? Má ég þá fá einkaleyfi á vindinum, snjónum og rigningunni? ,,Það má þá ekkert fjúka á þínu landi góði minn'' get ég hugsað mér að segja við einhvern sjálfskipaðan monthana sem bannar mér eitthvað. Eða ,,þú verður að taka allan snjó af þínu landi því snjórinn er minn'' Svo eru sumir sem banna veiðar nema gegn gjaldi?? Veit rjúpan af þessu? Auðvitað vil ég greiða fyrir réttinn að fá að veiða, og er búinn að því þegar ég borgaði fyrir veiðikortið. Landeigendur, ég skal greiða uppsett verð fyrir heimildina að fá að veiða á ykkar landi, en bara ein spurning, ef ég hitti ekki neina rjúpurassa, fæ ég þá endurgreitt? Það kostar mig nefnilega ekkert að labba þarna um byssulaus.
Rjúpnaskyttur fóru um lönd í leyfisleysi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
Bloggvinir
Af mbl.is
Erlent
- Ekki gert ráð fyrir frárennsliskerfum
- Kveikti í sér fyrir utan dómsalinn
- Kauphöllin að hruni komin
- Skutu mann sem réðist á þrjár konur
- Myndskeið: Segjast hafa skotið niður sprengjuflugvél
- Handtekinn eftir viðbúnað við ræðisskrifstofu Írans
- Argentína vill taka þátt í NATO
- Grunaður um að brugga Selenskí launráð
- Óttast að fuglaflensa breiðist meira út til manna
- Segja Ísraelsher hafa gert atlögu gegn loftvarnakerfum
Fólk
- Í fyrstu heimsókn eftir krabbameinsgreiningu Katrínar
- American Idol-keppandi fannst látinn
- Eltihrellir Harry Styles í fangelsi
- Swift hjólar í Kardashian á nýju plötunni
- Ungur faðir hljóp maraþon í minningu barna sinna
- Missti sjónar á móður sinni og gekk inn í miðjar tökur
- Warwick Davis syrgir fráfall eiginkonu sinnar
- Frábrugðin öllum öðrum sýningum
- Metsöluhöfundur með illvígt krabbamein
- Páll Óskar og Edgar Antonio fengu heimboð á Bessastaði
Viðskipti
- Unnu að fullum heillindum að kaupum á TM
- Nýtt bankaráð kjörið
- Landsbankinn greiðir 16,5 milljarða króna í arð
- Miðlar Sýnar ekki lengur til sölu
- Hafa innleitt stafrænar stefnubirtingar
- Lægra áskriftarverð á Stöð 2+
- Alvotech gerir langtímasamning í Bandaríkjunum
- Kynna fyrsta alþjóðlega hótelið á landsbyggðinni
- Ég á þetta ekki, ég má þetta
- Nýir stjórnarformenn yfir dótturfélög Orkuveitunnar
Athugasemdir
Þetta er spurning um þann rétt landeigenda hvort þeir leyfa skotveiðar á sínu landi eða ekki. Eg á t.d. jörð og á jörðinni er þónokkuð stórt skóglendi sem rjúpa sækir í . Ég leyfi ekki rjúpnaveiði á minni jörð vegna þess að ég hef ánægju af því að fylgjast með rjúpunni sérstaklega á sumrin þegar hún er með unga. Þetta verði þið rjúpnaskyttur að sætta ykkur við að þið getið ekki valtað yfir allt og alla og heimtað að fá að veiða þar sem ykkur sýnist þó svo að þið hafið greitt fyrir veiðikort og byssuleyfi.
Sigurður Baldursson, 7.11.2011 kl. 16:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.