Leita í fréttum mbl.is

Andskotans ráðríki.

Hvað er skítapakkið að gera? Já og við skulum banna sykur, láta almenning borga þungaskatt á hvert aukakíló umfram það sem tilheyrir ,,norminu''  Banna nammidag hjá börnum svo hægt verði að byggja tæknilegan spítala, Banna sölu á áfengi, banna bara allt, banna, banna og banna. Hvernig verður hérna eftir nokkur ár? Verður máske bannað að vera til? Er virkilega til fólk sem hugsar sem svo að ef það notar ekki eða geðjast ekki að einhverju þá á bara að banna það? Ég vil banna fólki að haga sér eins og hálvitar. Undirskriftarlisti verður á ferðinni til að banna bein afskipti af mér eða hvað mér þykir gott. Er að hugsa um að senda bara á alla og á þá sem svara ekki verður litið svo á að þeir séu samþykkir. Annars verða þeir sem eru á móti að senda inn skriflegt NEI.
mbl.is Styðja tillögu um tóbaksbann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvaða hvaða...

Loksins eitthvað að gerast í þessum málum.

Ég er stórreykingamaður.  Og þetta mun pottþétt hjálpa mér að hætta að reykja svo og mörgum öðrum :)

Jón Ingi (IP-tala skráð) 30.9.2011 kl. 18:31

2 identicon

jæja, það skapast bara gróðatækifæri fyrir helling af fólki, smygl og tóbaksræktun :)

annars er hægt að kaupa tóbaksfræ, ekkert mál að rækta þetta (reyndar mjög flott planta til að hafa við stofuglugga, verður stór og flott á littlum tíma)

og ekkert mál að þurrka og "cura" laufin (lætur þetta bara hanga í nokkra mánuði í einhverjum skáp)

sveinn sigurður ólafsson (IP-tala skráð) 30.9.2011 kl. 19:52

3 Smámynd: Ólafur Björn Ólafsson

Hver vill semja við mig um kaup á tóbaki???

Það er spurning hvort ég fari ekki að setja gróðamaskínuna í gang, ef ekki ég þá einhver annar...

Smygl mun hér stóraukast og það fækkar í tollinum mannskapnum sem þar er að vinna.

Launin eru svo lág að þar er ekki ráðið í stað þeirra sem hætta, það sækir enginn um...

Góssið mun flæða hér um og löggæslan stoppar þá minna.

Sem smygla og smygla því þeir halda hagkerfinu gangandi... Ríkisstjórn silfurskottu og skalla mun allt hér niður drepa. Það eina sem þrífst er svartamarkaður og ríkisfrekja. Ekki nema von að fólk af landi sér forðar, undan þeim skríl sem stjórnar þessu öllu.

Þetta mun verða hið nýja Ísland sem samfylking og VG vilja fyrir þjóðina...

Kaldi

Ólafur Björn Ólafsson, 30.9.2011 kl. 21:03

4 identicon

Stælbindi, stælsokkar, nýlonsokkar, vín og sterkt, Nýlonskyrtur, alvöru mannamatur frá útlöndum, sígarettur o.fl, o.fl.

Hver , sá eldri, man ekki eftir þessum góðu tímum - Þá voru líka stúlkur í ástandinu, sem var ekkert merkilegt, miðað við sauðheimsku og fáfræði landans, sem ekki hefur vitkast síðan og nú er þetta allt að koma aftur. Nýja Ísland undir stjórn sauðheimskra forræðishyggju kommúnista og annara siðblindra viðrina á Alþingi.

Tek fram, að nú koma sígaretturnar ekki frá Ameríku, heldur frá Póllandi og Serbíu.

Hver á að blessa Ísland?

V.Jóhannsson (IP-tala skráð) 30.9.2011 kl. 23:28

5 Smámynd: Óskar Guðmundsson

Helferðastjórnin er að "bless-a" landið. Verst er að þau tilbiðja Mammon og Andskotann.

Óskar Guðmundsson, 1.10.2011 kl. 02:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhann Berg Þorbergsson
Jóhann Berg Þorbergsson
Starfandi sjómaður, skipstjóri og yfirlýstur andstæðingur kvótakerfisins

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband